Nokia Asha 201 - Um stafræn réttindi

background image

Um stafræn réttindi
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t.

höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning mynda, tónlistar og annars efnis.

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t.

höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Í þessu tæki er hægt að

opna efni sem er varið með WMDRM 10 og OMA DRM 1.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni geta

efniseigendur beðið um að hæfni slíks hugbúnaðar til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænni réttindatækni sé

afturkölluð. Með afturköllun er einnig hægt að hindra endurnýjun á þannig vernduðu efni sem þegar er í tækinu. Afturköllun

slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er varið með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem

ekki er varið með stafrænum réttindum.

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir leyfi sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.

Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt leyfum þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gætu leyfin

og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist leyfin eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.

Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.