Nokia Asha 201 - SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

background image

SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir

Mikilvægt: Ekki skal nota mini-UICC SIM-kort, einnig þekkt sem micro-SIM-kort,

micro-SIM-kort með millistykki eða SIM-kort með mini-UICC straumloka (sjá mynd) í

þessu tæki. Micro SIM-kort er minna en venjulegt SIM-kort. Þetta tæki styður ekki

notkun micro SIM-korta og ef ósamhæf SIM-kort eru notuð getur það valdið

skemmdum á minniskortinu eða tækinu sjálfu og gögn sem geymd eru á kortinu geta

skemmst.

Þessi sími er ætlaður til notkunar með BL-5J rafhlöðu. Notið alltaf rafhlöður frá Nokia.

1 Settu fingurinn í dældina neðst á símanum og taktu bakhliðina varlega af honum.

2 Fjarlægðu rafhlöðuna ef hún er í.

6

Tækið tekið í notkun

background image

3 Renndu til SIM-kortahöldunni til að opna hana (1) og lyftu henni svo með nöglinni.

Gættu þess að snertiflötur SIM-kortsins snúi niður þegar það er sett inn (2),

komdu SIM-kortinu fyrir í kortahöldunni og leggðu hana svo að símanum (3).

Renndu kortafestingunni þannig að hún læsist (4).

4 Gættu þess að rafskaut rafhlöðunnar nemi við tengi rafhlöðuhólfsins og settu

rafhlöðuna á sinn stað. Til að setja bakhliðina aftur á tækið skaltu beina efstu

læsihökunum að raufunum og ýta henni niður þar til hún smellur á sinn stað.