Minniskorti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæf minniskort sem Nokia samþykkir til notkunar með þessu
tæki. Ósamhæf minniskort gætu skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð
eru á kortinu.
Síminn styður minniskort sem eru allt að 32 GB að stærð.
1 Opnaðu lok minniskortsraufarinnar.
2 Gakktu úr skugga um að snertiflötur minniskortsins snúi upp og settu kortið inn.
Ýttu kortinu inn þar til það smellur á sinn stað.
3 Lokaðu minniskortsraufinni.
8
Tækið tekið í notkun
Mikilvægt: Ekki fjarlægja minniskortið þegar verið er að nota það í forriti. Það
kann að skemma minniskortið og tækið og spilla gögnum sem vistuð eru á kortinu.
Hægt er að fjarlægja eða skipta um minniskort án þess að slökkva á símanum.
Minniskort fjarlægt
Ýttu kortinu inn þar til það losnar og dragðu það svo út.