Nokia Asha 201 - Tækið notað til að uppfæra hugbúnað

background image

Tækið notað til að uppfæra hugbúnað
Viltu auka afköst tækisins og fá uppfærslur á hugbúnaði og nýjar og skemmtilegar

aðgerðir? Uppfæra skal hugbúnaðinn með reglubundnum hætti til að fá sem mest út

úr tækinu. Einnig er hægt er að stilla tækið á sjálfvirka leit að uppfærslum.

Viðvörun:

Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en

uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst.

Við notkun þjónustu eða niðurhal efnis getur þurft að hlaða niður miklu gagnamagni

og greiða fyrir gagnaflutning.

Um Samfélög

29

background image

Áður en uppfærslan er ræst skaltu tengja hleðslutækið eða ganga úr skugga um að

rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu.

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

.

1 Veldu

Tæki

>

Uppfærslur tækisins

.

2 Veldu

Nýjustu upplýsingar

til að sjá núverandi útgáfu hugbúnaðarins og athuga

hvort hægt er að fá hann uppfærðan.

3 Veldu

Sækja tækishugbúnað

til að hlaða niður og setja upp uppfærslu á

hugbúnaði. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

4 Ef hætt var við uppsetningu að niðurhali loknu velurðu

Setja upp uppfærslu

.

Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við þjónustuveituna ef þú

átt í vandræðum með uppfærsluna.

Sjálfvirk leit að hugbúnaðaruppfærslum
Veldu

Sjálfvirk uppfærsla

og tilgreindu hve oft skal leita að nýjum

hugbúnaðaruppfærslum.

Þjónustuveitan getur sent hugbúnaðaruppfærslur beint í tækið. Þjónustuveitan veitir

nánari upplýsingar um þessa þjónustu.